top of page
Lausnamið ehf 

Stefna

Stefna Lausnamiða er að vera framúrskarandi þjónustuskrifstofa sem hefur hag viðskiptavina að leiðarljósi í samræmi við lög og reglugerðir.  

Hlutverk 

Hlutverk Lausnamiða er að veita áreiðanlega og persónulega bókhaldsþjónustu og rekstrarráðgjöf fyrir einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir.

Markmið 

Markmið Lausnamiða er að viðskiptavinir geti komið og fengið alla þá skrifstofuþjónustu sem þeir þurfa hvort heldur sem er á sviði bókhalds eða annarrar sérfræðiþjónustu varðandi rekstur.

Umhverfismál

Lausnamiðum er umhugað um umhverfismál og hefur ávallt í huga að takmarka alla útprentun og nýta rafrænar leiðir eins og kostur er.

Staðreyndir

Lausnamið ehf var stofnað á haustmánuðum 2018 og hóf starfssemi 1. janúar 2019, starfsmenn félagsins eru tveir.

Starfssemin er til húsa á jarðhæð í glæsilegu uppgerðu fyrrum kaupfélagshúsi á Skagaströnd að Einbúastíg 2.

Skrifstofan er opin alla virka daga frá klukkan 09:00 til 13:00 og eftir samkomulagi

​Sími skrifstofunnar er 555-3066 og netfangið er lausnamid@lausnamid.is

Erla Jónsdóttir - Rekstrarfræðingur BSc
Beinn sími 858-3066


Erla hefur mikla reynslu af almennu bókhaldi, uppgjörum, framlegðarútreikningum og samskiptum við lánastofnanir.   Hefur einnig haft umsjón með skjalamálum og sett upp og stýrt gæðakerfi sem gekkst undir ýmsar alþjóðlegar vottanir.  Auk þessa stendur hún að sauðfjárbúi og skógrækt með fjölskyldu sinni.

 

Dagný Marín Sigmarsdóttir - Viðurkenndur bókari
Beinn sími 853-3066

 

Dagný hefur mikla reynslu í skrifstofustörfum, bæði færslu bókhalds, launaútreikningum og birgðahaldi hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum.   Hún lauk námi hjá Háskóla Reykjavíkur sem viðurkenndur bókari 2009 og hefur síðan séð um bókhald fyrir nokkur félög. 

_______________________________________________________________________________________________________

Lausnamið ehf - Einbúastíg 2 - 545 Skagaströnd 

Símar 555-3066 / 853-3066 netfang: lausnamid@lausnamid.is

  • s-facebook
  • Twitter Metallic
  • Google Metallic
  • s-linkedin
bottom of page